Við gætum, verndum og viðhöldum vefjum dag eftir dag. Hýsing, öryggisuppfærslur, afritun og vöktun, allt á einum stað og í öruggum höndum.
Hraðvirk hýsing sniðin að vefnum, með CDN og SSL. Við veljum umhverfi eftir því hvað vefurinn þarf, ekki eftir því hvað er ódýrast.
Kerfis- og viðbótauppfærslur, öryggisplástrar og prófanir áður en þær fara í loftið. Gamlar útgáfur eru algengasta leiðin inn.
Dagleg afrit geymd utan hýsingar. Ef eitthvað fer úrskeiðis er vefurinn kominn aftur upp á stuttum tíma, ekki eftir helgi.
Sjálfvirk vöktun á uppitíma, hraða og skírteinum. Við sjáum vandamálið oftast áður en þú tekur eftir því.
Við flytjum vefinn til okkar, prófum í lokuðu umhverfi og skiptum yfir án niðritíma.
Uppfærslur, afrit og vöktun keyra á sínum takti. Þú færð yfirlit, ekki tilkynningu um hvert smáatriði.
Rekstrarsamningur getur innihaldið tíma í breytingar og viðbætur svo vefurinn staðni ekki.