Heim Þjónusta Verkefni Vefúttekt Um okkur
← Öll þjónusta

Gervigreindí vinnu

Snjallar lausnir sem spara tíma: gervigreind í þjónustu og efnisvinnslu, sjálfvirkni í ferlum og samþættingar milli kerfa. Fólkið þitt tekur ákvarðanirnar, vélin vinnur grófvinnuna.

Þjónustan

Þetta felst í gervigreind og sjálfvirkni

Gervigreind í þjónustu

Aðstoðarmenn sem svara algengum spurningum út frá ykkar eigin gögnum og vísa réttum erindum áfram á fólk.

ÞjónustaAðstoðarmaður

Efnisvinnsla

Drög að texta, þýðingar, samantektir og flokkun á efni. Starfsfólkið les yfir og samþykkir, vélin vinnur grófvinnuna.

EfniÞýðingar

Sjálfvirkni í ferlum

Það sem er gert handvirkt aftur og aftur: gagnaflutningur, skýrslur, tilkynningar. Við tengjum það saman og látum það gerast sjálfkrafa.

SjálfvirkniFerlar

Samþættingar

Bókhald, CRM, vöruskrá, greiðslur. Kerfin ykkar tala saman í gegnum API í stað þess að fólk færi gögn á milli.

APISamþættingar
Ferlið

Svona vinnum við

  1. 1

    Kortlagning

    Við finnum verkin sem taka tíma og skoðum hvar vél getur tekið við án þess að gæðin falli.

  2. 2

    Frumgerð

    Lítil útgáfa prófuð á alvöru verkefnum í nokkrar vikur. Ef hún borgar sig ekki er hún ekki byggð stærri.

  3. 3

    Innleiðing

    Lausnin tengd við kerfin, starfsfólk þjálfað og mælt hvað sparast í tíma og villum.

Hvað tekur mestan tíma hjá ykkur í dag? Byrjum þar.

Hafa samband